Eignarhald

Tips.is er eigu Angling Advisor ehf., kt. 540717-0280. Eigendur Angling Advisor hafa samanlagt yfir 50 ára reynslu af stangveiðum og skotveiðum á Íslandi sem og erlendis.

Um tips.is

Vefurinn tips.is er óháð markaðstorg fyrir veiðileyfi á Íslandi þar áhugafólk um veiði hittir fyrir seljendur veiðileyfa. Eigendur eiga enga hluti í veiðiám, veiðistöðum né hafa nein hagsmunatengsl við félög sem reka veiðiár- og staði.

Okkar markmið er að auðvelda áhugasömum aðgengi að fjölbreyttu úrvali veiðileyfa um allt land. Auk þess leggjum við ríka áherslu á að veita fróðlegar og ítarlegri upplýsingar en áður hefur þekkst sem gott og gagnlegt er að vita áður en lagt er af stað á vit ævintýranna. Við erum rétt að byrja og erum stöðugt að fá nýjar hugmyndir sem við vonumst til að verði að veruleika á næstu vikum og mánuðum. Fylgist því endilega vel með!

Af hverju “tips” ?

Uppruna nafnsins og hugmyndina að vefnum á sér rætur í því að oftar en ekki hefur verið leitað til okkar og beðið um “tips” fyrir hina og þessa veiðistaði, veiðiaðferðir, flugur, veiðar við ákveðnar aðstæður og svo mætti lengi telja. Það hefur alltaf glatt og því fannst okkur að deila því hér í bland við gott úrval veiðileyfa með öllum þeim sem áhuga hafa.